Útboð á tjaldsvæðum í Fjarðabyggð
30.04.2024Á dögunum voru opnuð tilboð í rekstur tjaldsvæða í Fjarðabyggð. Alls bárust tilboð frá sex aðilum í mismunandi tjaldsvæði í Fjarðabyggð. Engin tilboð bárust í tjaldsvæðið á Eskifirði og Norðfirði.
Á dögunum voru opnuð tilboð í rekstur tjaldsvæða í Fjarðabyggð. Alls bárust tilboð frá sex aðilum í mismunandi tjaldsvæði í Fjarðabyggð. Engin tilboð bárust í tjaldsvæðið á Eskifirði og Norðfirði.
Námskeið var haldið á dögunum á vegum almannavarna í umdæminu og Almannavarnadeildar RLS, haldið í húsakynnum aðgerðastjórnar. Á því voru fulltrúar frá björgunarsveitum, sveitarfélögunum, slökkviliðunum, Rauða krossinum, Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) og lögreglu.
Fjarðabyggð hefur borist niðurstaða mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna þeirra athugasemda sem Kennarasamband Íslands gerði við fyrirhugaðar breytingar á fræðslumálum í Fjarðabyggð.
Afstaða ráðuneytisins er sú að breytingar á fræðslumálum í leik-, grunn- og tónlistarskólum Fjarðabyggð stangist ekki á við gildandi lög. Athugasemdir ráðuneytisins snúa að formlegu samráðsferli, að ekki hafi verið haft nægt samráð við skólaráð grunnskóla eða foreldraráð leikskóla. Í ljósi þessarar athugasemdar mun Fjarðabyggð hefja samráðsferli við ofangreinda aðila og óska eftir umsögnum þeirra.
Bréf ráðuneytsins til Fjarðabyggðar má finna hér: Bréf til Fjarðabyggðar_mrn.pdf
Nemendaráð Grunnskóla Reyðarfjarðar samanstendur af einstaklega hugmyndaríkum og framtakssömum nemendum. Á mánudaginn síðastliðinn stóðu nemendur fyrir sérstökum viðburði sem fólst í því að hvetja nemendur og starfsmenn til að koma með gögnin sín í einhverju öðru en hefðbundnum skólatöskum.
Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri býður uppá opinn viðtalstíma þriðjudaginn 23. apríl frá klukkan 18:00 - 19:30 í Eskifjarðarskóla.
Íbúum er velkomið að koma við, fá sér kaffi og spjalla við bæjarstjóra um þau málefni sem brenna á þeim.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, mun á næstu vikum halda opna fundi víðs vegar um land þar sem fjallað verður um orkumál og verkefnin framundan. Annar fundurinn verður haldinn á Egilsstöðum mánudaginn 22. apríl.
Breytt tímasetning er á rafmagnsleysinu sem verður í stórum hluta Breiðdalsvíkur 30.04.2024 vegna viðhalds á dreifikerfi Rarik. Ný tímasetning er frá kl 23:00 til kl 03:00. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Austurlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
Bókasafnið á Reyðarfirði verður lokað frá og með fimmtudeginum 2. maí - til og með þriðjudeginum 7. maí. Opnum aftur miðvikudaginn 8. maí. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem það kann að valda.
Forstöðumaður.
Sumardagurinn fyrsti (25. apríl): Lokað
1. maí: 11:00 - 16:00
Sumardagurinn fyrsti (25. apríl): 13:00 - 18:00
1. maí: Lokað